BYLTING Í ÁFALLaMEÐFERÐ
Þéttar meðferðarlotur,
Fræðsla, námskeið og fagleg þjálfun í EMDR meðferð
Ég sérhæfi mig í þéttum meðferðarlotum fyrir einstaklinga sem vilja vinna markvisst og djúpt með afleiðingar áfalla, streitu eða tilfinningalegs ójafnvægis. Ég býð einnig upp á vottaða þjálfun í EMDR meðferð, ýmis námskeið, Masterclass fyrir EMDR meðferðaraðila og handleiðslu fyrir fagaðila sem vilja dýpka færni sína í áfallameðferð.
-

Meðferðarlotur
Ég sérhæfi mig í meðferðarlotum fyrir einstaklinga þar sem unnið er með áföll og annan vanda á nokkrum dögum.
-

EMDR Námskeið
Ég býð upp á grunnþjálfun í EMDR meðferð og önnur námskeið fyrir sálfræðinga og annað fagfólk í geðheilbrigðisþjónustu.
-

Masterclass
Masterclass og hóphandleiðsla fyrir EMDR meðferðaraðila sem vilja dýpka þekkingu sína á EMDR meðferð og partavinnu.
dr.Gyða Eyjólfsdóttir
Sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. EMDR Europe og EMDRIA hæfnivottaður meðferðaraðili og handleiðari í EMDR meðferð. EMDR Europe og EMDR Institute hæfnivottaður kennari í EMDR meðferð.
Þéttar meðferðarlotur (Therapy Intensives)
Ég vinn nú eingöngu með einstaklingum í stuttum, markvissum meðferðarlotum þar sem unnið er með afmarkaða hluti innan fyrirfram ákveðins ramma.
Menntun og sérfræðiréttindi
Ég er sálfræðingur með doktorsgráðu frá The University of Texas at Austin. Fékk löggildingu sem sálfræðingur árið 2004 og hlaut sérfræðiréttindi í klínískri sálfræði árið 2017. Þekking mín byggir á traustum fræðilegum grunni, áratugalangri reynslu í meðferðarstarfi og stöðugri endurmenntun og þjálfun í meðferð flókinna áfalla, hugrofseinkenna og afleiðingum áfalla.
Sérhæfing í EMDR meðferð, partavinnu og úrvinnslu áfalla
Frá 2005 hef ég starfað sjálfstætt með áherslu á EMDR meðferð við flóknum áföllum. Ég er þjálfuð í Deep Brain Reorienting og hef víðtæka reynslu af áfallameðferð og partavinnu. Ég nota einnig hugræna atferlismeðferð ásamt öðrum meðferðarleiðum. Ég er líka sérhæfð í tilfinningahliðum ófrjósemi og langvarandi verkjavanda.
Leiðandi í samfélagi EMDR meðferðaraðila
Ásamt kollega stofnaði ég félagið EMDR á Íslandi árið 2012 og var formaður félagsins frá 2018 til 2022. Undir minni stjórn fékk félagið aðild að EMDR Europe. Ég hef flutt inn EMDR kennara og komið að þjálfun og handleiðslu um 250 EMDR meðferðaraðila á Íslandi. Ég stofnaði og rak EMDR stofuna 2018-2022. Sem hvottaður EMDR meðferðaraðili, handleiðari og kennari í EMDR meðferð tek ég reglulega að mér kennslu, handleiðslu og þjálfun fyrir fagfólk.
Áratuga reynsla
Reynsla mín spannar rúm 25 ár í ólíkum meðferðarumhverfum á Íslandi og í Bandaríkjunum og hefur sú vinna fært mér djúpa þekkingu á sálrænum afleiðingum áfalla, tilfinningahliðum ófrjósemi og langvarandi verkja.
MEÐFERÐ
FYRIR EINSTAKLINGA
þÉTTAR OG HNITMIÐAÐAR MEÐFERÐARLOTUR
Í einstaklingsmeðferð býð ég eingöngu upp á þétta áfallameðferðarlotu, ekki hefðbundna viðtalsmeðferð.
Þétt, markviss meðferðarlota hentar fólki sem vill vinna djúpt með afleiðingar áfalla í afmarkaðan tíma. Meðferðin byggir á nákvæmri kortlagningu, skýrum markmiðum og aðferðum sem styðja við náttúrulega úrvinnslu heilans á erfiðum minningum og áföllum.
Áfallameðferðarlotan getur staðið yfir frá þremur klukkustundum upp í sex klukkustundir yfir einn dag með innbyggðum hléum, í allt að fimm samliggjandi daga. Þannig næst mikill árangur á skömmum tíma.
Hentar best þeim sem:
vilja stutt, markvisst meðferðarúrræði
eru að vinna úr áföllum eða missi
standa frammi fyrir breytingum í lífi eða starfi
kjósa samfellda og árangursríka nálgun
vilja hraðann árangur
vilja vinna á dýptina
„Þéttar meðferðarlotur eru skjótvirk og öflug leið til að vinna með afmörkuð áföll eða fastar tilfinningar. Þú færð heila daga í samfellu með sérfræðingi og árangur sem getur oft jafnast á við margra mánaða meðferð.”
- Dr. Gyða Eyjólfsdóttir, klínískur sálfræðingur,
hæfnivottaður EMDR meðferðaraðili,
handleiðari og kennari.
NÁMSKEIÐ
FYRIR FAGFÓLK
VOTTUÐ EMDR ÞJÁLFUN 1. OG 2. hluti
Námskeið - Fyrri hluti EMDR þjálfunar - helgi 1
Undirstöðuþjálfun í EMDR meðferð
Kynning á kenningarlegum grunni og 8 þrepa verklagi EMDR meðferðar
Önnur nálgun á sögu skjólstæðings og meðferðaráætlun
Unnið með fortíð, nútíð og framtíð
Rík áhersla á öryggi, handleiðslu og fagleg mörk
Fyrirlestrar, sýnikennsla, myndbönd og verklegar æfingar í litlum hópum undir handleiðslu
Lengd: 3 dagar í staðlotu + verkefni og sjálfstæð vinna.
Fyrir hverja: Sálfræðinga og aðra sérfræðinga í geðheilbrigðisþjónustu með meðferðarréttindi og staðfesta handleiðslutíma.
Námskeið - Seinni hluti EMDR þjálfunar - helgi 2
Framhaldsþjálfun og dýpkun í EMDR meðferðarfræðum
Viðbótarverkfæri og verklag fyrir flóknari mál
Áhersla á vinnu með flókin áföll, endurtekin áföll og nýleg atvik.
EMDR meðferð fyrir börn og unglinga
Meðferðaráætlun fyrir flóknari mál
Fyrirlestrar, sýnikennsla, myndbönd og verklegar æfingar í litlum hópum undir handleiðslu.
Lengd: 3 dagar í staðlotu og síðar 5 tímar af handleiðslu.
Skilyrði: Hafa lokið fyrri hluta EMDR þjálfunar og staðfest þátttaka í handleiðslu
UMSÖGN
„Námskeiðið gerði mig að betri meðferðaraðila og handleiðara. Það að sjá, spegla og fá endurgjöf beint á mína vinnu í gegnum þetta ferli var ómetanlegt.“
— Sigríður Björnsdóttir, sálfræðingur,
EMDR Europe hæfnivottaður handleiðari
NÁMSKEIÐ
FYRIR FAGFÓLK
Master class
Master Class er námskeið fyrir reynda EMDR meðferðaraðila sem vilja efla sig í EMDR meðferðarfræðunum, þar með talið EMDR úrvinnslu, skerpa á notkun partavinnu og þjálfa sig í beitingu þessara aðferða í raunverulegum aðstæðum. Hver dagur blandar saman sýnikennslu, umræðum, paravinnu ásamt bæði einstaklings- og hóphandleiðslu svo þátttakendur eflast bæði persónulega og faglega á námskeiðinu.
Ég hjálpa þátttakendunum að tengja fræðin við klínísku vinnuna og þannig eykst geta þeirra til að vinna af meiri dýpt, öryggi og tengingu við skjólstæðinga.
Master class og handleiðsla
Handleiðsla
Þátttakendum í Master Class stendur til boða mánaðarleg hóphandleiðsla. Þar fá meðferðaraðilar tækifæri til að skoða eigin klínísku vinnu, fá uppbyggilega endurgjöf og styðja hvert annað í áframhaldandi faglegri þróun.
Ég legg áherslu rými þar sem unnið er með raunveruleg mál, með áherslu á nákvæmni, næmni og dýpri skilning á EMDR meðferð, afleiðingum áfalla og partavinnu.
Handleiðsla er einungis í boði fyrir þátttakendur í Master Class.
-
EMDR - Helgi 1
Fyrra EMDR námskeiðið er haldið 1 sinni á ári. Senda þarf inn umsókn með gögnum. Samþykktir umsækjendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti.
-
EMDR - Helgi 2
Seinna EMDR námskeiðið er haldið 1 sinni á ári nokkrum mánuðum á eftir EMDR 1. Samþykktir umsækjendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti.
-
Masterclass
Masterclass er fyrir starfandi fagaðila og fara hópar í gang á vorin og haustin. Umsækjendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti.